Jólaljósin okkar 2019
Senn líður að jólum og hátíð ljóss og friðar fer í hönd og enn bjóðum við fram þjónustu okkar. Um er að ræða raflýstan kross á leiði ástvina í Gufuneskirkjugarði sem kveikt verður á 1. sunnudag í aðventu hafi greiðsla borist til okkar 2 til 3 dögum fyrir þann tíma og logar fram yfir þrettándann. Gjald fyrir þjónustu þessa er kr. 10.900 óháð lengd lýsingartímabils.
Ef þú ert með leiðis upplýsingar þá getur þú sett það í formið hér fyrir neðan og greitt með greiðslukorti. Til að fá kross á milli tveggja samliggjandi leiða þá setur þú inn leiðis upplýsingar fyrir hvort leiðið fyrir sig. Þegar þú setur inn seinna leiðið færðu val á að fá 2 krossa eða 1 kross á milli.
Þú getur nálgast upplýsingar í legstaðaskrá Kirkjugarða Reykjavíkur fyrir Gufuneskirkjugarð eða duftgarðinn í Gufuneskirkjugarði.
Starfsmenn munu vera til aðstoðar í garðinum frá 25. nóvember virka daga kl. 12 – 15.
Pöntun þín telst staðfest þegar greiðsla hefur borist, en frá þeim tíma geta liðið allt að þrír virkir dagar þar til lýsingin hefur verið sett upp nema veður hamli vinnu í garðinum. Komi upp vandamál er þjónustusíminn 698 4444 milli kl 10 og 16 virka daga en einnig er hægt að hafa samband við okkur.